Björn Þór Vilhjálmsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar um nýtt smásagnasafn Kristínar Ómarsdóttur, Við tilheyrum sama myrkrinu. HÉR má hlusta á eða lesa viðtalið í heild sinni á vef RÚV.
Björn Þór Vilhjálmsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar um nýtt smásagnasafn Kristínar Ómarsdóttur, Við tilheyrum sama myrkrinu. HÉR má hlusta á eða lesa viðtalið í heild sinni á vef RÚV.
Hinn 27. mars birtist skemmtilegt viðtal við Kristínu Ómarsdóttur á nýlegu vefsíðunni Subbuskapur og sóðarit. Rithöfundurinn Hermann Stefánsson tók viðtalið, en það má lesa í heild hér, eða með því að ýta á myndina.
Kristín Ómarsdóttir er í hópi margra skálda sem munu kl. 17:30 lesa ljóð eftir Liu Xiaobo nóbelsskáld í Ráðhúsi Reykjavíkur. Í dag verða ljóð hans lesin í 40 löndum víðsvegar um heim honum til stuðnings, en hann hefur nú setið inni í 1198 daga af ellefu ára dómi í fangelsi í Kína, er hann hlaut fyrir skoðanir sínar og mannréttindabaráttu.
Hinn margtyngdi Elías Portela les enskar þýðingar á eigin ljóðum úr Sjóaranum á Reykjavík Downtown Hostel klukkan 21:00 í kvöld.
Í Fréttablaðinu í gær birtist þessi ágæti dómur Friðriku Benónýsdóttur um nýju bókina hennar Kristínar Ómarsdóttur, Við tilheyrum sama myrkrinu – Af vináttu: Marilyn Monroe og Greta Garbo. Hér er hægt að skoða hann á visir.is
Kristjana Guðbrandsdóttir birti frábæra umfjöllun um nýjustu bók Kristínar Ómarsdóttur Við tilheyrum sama myrkrinu – Af vináttu: Marilyn Monroe og Greta Garbo í DV í gær.
Jæja þá er þessi undurfallega bók komin í helstu bókabúðir. Einnig er hún fáanleg á jólabazarnum í NÝLÓ til jóla.
-við tilheyrum sama myrkrinu- Af vináttu: Marilyn Monroe og Greta Garbo
er smásagnasafn prýtt myndum eftir Kristínu sjálfa. Bókin kemur eldheit úr prentun í næstu viku!
Nú á sunnudaginn verður þriðji aðventuupplestur í stofunni á Gljúfrasteini.
Höfundar koma og lesa úr nýútkomnum verkum sínum. Á þessum yndissunnudegi;
Gleðin hefst stundvíslega klukkan 16:00 og er öllum opin og ókeypis.